|
|
|
Alþjóðleg gistiþjónusta
Hvernig eyðir þú
fríinu?
Ef þú vilt
- greiða dýra hótelgistingu
- eyða fríinu með nágranna þínum (eða öðrum sem þú umgengst hvunndags)
- heimsækja löndin aðeins í gegnum myndirnar sem þú tekur
- kvarta yfir því að innfæddir skilji þig ekki
- "afgreiða Evrópu" á viku
ef svo er, þá er þessi síða ekkert fyrir þig. Ekki lesa meira! Farðu
vinsamlegast af síðunni
En ef þú vilt
- borga lítið eða ekkert fyrir gistingu
- kynnast nýju og skemmtilegu fólki sem tekur á móti þér á heimili sínu
- heimsækja staðina sem aðeins hagvanir þekkja
- komast hjá tungumálaörðugleikum
- verja tímanum til þess að kynnast landi og þjóð
þá hentar "Pasporta Servo" líklega þér. Lestu áfram
Hvað er "Pasporta Servo"?
"Pasporta Servo" er net aðila sem bjóða gistingu, en það telur nú
u.þ.b. 1350 gestgjafa í meira en 85 löndum umhverfis hnöttinn. Til þess að gerast aðili
að netinu sem gestur, þarf aðeins að kaupa listann, sem er uppfærður árlega. Þar
með geturðu notfært þér þjónustuna. Sérhver gestgjafi hefur tiltekið ákveðin
skilyrði, eins og t.d. fjölda gesta eða daga, eða að tilkynnt sé um komu með
ákveðnum fyrirvara. Gestgjafar taka ekki gjald fyrir, og sumir bjóða þér m.a.s.
morgunmat eða gómsætan kvöldverð. En ef þið dveljið vikutíma fjögur saman er
auðvitað skiljanlegt að einhverjir vilji fá lítilsháttar framlag. Söluverð listans
nægir til þess að fjármagna umsjónarkostnað okkar.
Óhugsandi. Hvað hangir á spýtunni?
Nú, jæja, það er eitt mikilvægt skilyrði. Þú verður að læra esperantó. Innritunarblaðið er á esperantó,
listinn er á esperantó, og sérhver gestgjafi talar esperantó. Nei, bíddu! Það er
ekki eins slæmt og það sýnist. Esperantó er auðlært mál. Einföld málfræði,
engar undantekningar, kunnugleg orð, allt sem tungumál getur boðið upp á. Þú getur
lært það á hálfu ári. Ef þú ert málamaður getur mánuðurinn hrokkið til þess
að ná nægilegri færni til þess að halda uppi samræðum um það nauðsynlegasta.
Esperanto-traduko
|
 |